Viðburðir
Velkomin á fræðslukvöldið AÞENA HEIM
Ný vefsíða, CIDESCO þingið og hugmynd um Íslandsmót í snyrtifræði haustið 2007
Fræðslukvöld FÍSF verður haldið miðvikudaginn 8. nóvember og hefst stundvíslega kl. 20:00 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35, 6. hæð.
Efni fundarins:
- Ný vefsíða félagsins
- Nýloknu er CIDESCO þingi sem fram fór í Aþenu og verður farið yfir það helsta sem þar kom fram
- Hugmyndir kynntar um Íslandsmeistaramót í snyrtifræði 1. og 2. september 2007
Stjórn FÍSF minnir félagsmenn á spennandi vetrardagskrá sem birt var á baksíðu félagsblaðsins sem allir eiga að hafa fengið sent í pósti - og sem birt verður hér á vefnum innan skamms.


