Tilgangur og markmið
Öflugt fagfélag sem eflir samstöðu snyrtifræðinga og stendur vörð um hagsmuni félagsmanna
Hlutverk
FÍSF er fagfélag sem stuðlar að fræðslu og framförum í snyrtifræði. Félagið reynir að miðla upplýsingum um nýjungar til félagsmanna og efla samstöðu meðal snyrtifræðinga. Félagið stendur vörð um löggildingu starfsins.
Markmið
Markmið félagsins er að sem flestir snyrtifræðingar, sem útskrifast í faginu, gangi í félagið. Þannig getur FÍSF stækkað og starfað sem öflugt hagsmunafélag fyrir félagsmenn sína.


