Lög félagsins

Lög Félags íslenskra snyrtifræðinga

1. gr.

Heiti – Heimili

Félagið heitir Félag íslenskra snyrtifræðinga, skammstafað F.Í.S.F. stofnað 5. mars 1979. Lögheimili er í Reykjavík en starfssvið þess er landið allt.  Félagið er aðili að Comité International d’Esthétiqu et de Cosmetologie, skammstafað CIDESCO, sem er alþjóðarsamband starfsgreinarinnar.  Félagið er einnig aðili að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd þeirra atvinnu-rekenda innan félagsins sem uppfylla skilyrði þessara samtaka um aðild.  Starfsgreinin var gerð að löggiltri iðngrein þann 13. febrúar 1985.

 

2. gr.

 

Markmið

Tilgangur félagsins er að efla samheldni meðal snyrtifræðinga á Íslandi, að koma í veg fyrir að réttur þeirra sé fyrir borð borinn og að stuðla að öllu því er til framfara horfir í starfsgreininni.

3. gr.

 

Aðild að FÍSF

Stjórnin skal halda félagaskrá og færa inn á hana nöfn allra nýrra félaga.  Þeir sem geta orðið félagar eru:

A) Félagsmenn

B) Skólar

 

A)  Félagsmenn

1.       Meistarar í starfsgreininni.

2.       Þeir sem hafa sveinsbréf í starfsgreininni.

3.       Umsóknir um inngöngu í félagið skulu vera skriflegar á þar til gerð eyðublöð ásamt persónulegum upplýsingum, s.s. kennitölu, upplýsingum um námsferil og afrit af sveins- eða meistarabréfi.

4.       Nýir félagar skulu teknir formlega inn á félagsfundum.

5.       Félagsmenn 67 ára og eldri eru undanþegnir greiðslu félagsgjalds, nema þeir séu enn starfandi, en halda fullum réttindum.

 

B. Skólar

1.    Skólar með fullt leyfi frá menntamálaráðuneytinu til að kenna snyrtifræði til sveinsprófs samkvæmt gildandi námsskrá.

2.    Starfandi kennarar skólans skulu vera félagar í FÍSF.

3.    Gerður skal skriflegur verktakasamningur við inngöngu milli félagsins og skólans varðandi vinnuframlag vegna CIDESCO samstarfs.

4.    Skóli hefur ekki atkvæðisrétt en forsvarsmaður skóla getur komið skriflegri tillögu til stjórnar.

 

4. gr.

Aðalfundur

Aðalfundur, sem fer með æðsta vald í félaginu, skal haldinn á tímabilinu 15. janúar – 15. mars ár hvert og til hans boðað skriflega að minnsta kosti með viku fyrirvara.  Dagskrá fundarins skal tilkynna í fundarboðinu svo og allar tillögur sem þurfa samþykki aðalfundar samkvæmt félagslögum.  Fundi stjórnar fundarstjóri og skal hann kanna hvort fundurinn er lögmætur en aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til fundarsóknar.

 

Verkefni aðalfundar eru:

a)            Ársskýrsla formanns

b)            Rekstrarskil gjaldkera

c)            Skýrslur nefnda

d)            Lagabreytingar

e)            Kjör stjórnar og reikningsskoðunarmanna

f)            Kjör í nefndir

g)            Önnur mál

 

5. gr.

Aukaaðalfundur

Aukaaðalfund skal halda ef félagsstjórn telur nauðsynlegt.  Sama gildir ef fimmti hluti félagsmanna sendir um það skriflega kröfu.  Í fundarboði skal tilgreina fundarefni.  Lögmætur er fundur sem er löglega boðaður.  Um boðun aukaaðalfundar gilda sömu reglur og um aðalfund.

 

6. gr.

Stjórn og nefndir

Stjórnin skal skipuð formanni, varaformanni og þrem meðstjórnendum auk þriggja manna varastjórnar.  Þess skal ávallt gætt að í aðalstjórn sé einn fulltrúi stofueigenda, einn meistara og einn sveina.

 

a)       Formaður er kjörinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Hafi formaður setið í sex ár samfleytt má eigi endurkjósa hann fyrr en minnst tvö ár eru liðin frá því að hann lét af formennsku. Varaformaður skal kosinn í sérstakri kosningu til eins árs í byrjun síðasta starfsárs formanns.  Varaformaður tekur síðar sjálfkrafa við formannsembættinu.

b)       Kosning fjögurra meðstjórnenda til tveggja ára sem síðan skipta með sér störfum og þriggja manna varastjórn sem vinnur með stjórninni.  Endurkosning er leyfileg.

c)       Kosning skal vera skrifleg ef þess er krafist

 

Meirihluti atkvæða ræður í einstökum málum nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.  Fráfarandi stjórn skilar af sér á sameiginlegum stjórnarfundi.  Ekki fleiri en tveir ganga úr stjórn hverju sinni nema með sérstökum undantekningum.  Allar tillögur skulu afhentar formanni skriflega.

 

7. gr.

Atkvæðisréttur

Atkvæðisrétt hafa aðeins skuldlausir félagsmenn og hefur hver félagi eitt atkvæði.  Ekki má fela öðrum atkvæði sitt nema með skriflegu umboði sem afhendist stjórn félagsins.  Komi til atkvæðagreiðslu um málefni, sem eingöngu varðar félaga starfandi á snyrtistofu, hafa aðeins þeir atkvæðisrétt. 

 

8. gr.

Starfssvið stjórnar og nefnda

Félagsfundir skulu haldnir á tímabilinu 1. september til 30. apríl. Lágmarksfjöldi funda eru tveir, aðalfundur og haustfundur.

 

Formaður skal boða til fundar og stjórna þeim eða skipa fundarstjóra í sinn stað.  Hann skal vinna að stefnumörkun fyrir félagið og sjá um framkvæmd ákvarðana aðal- og félagsfunda í samráði við stjórn.  Varaformaður, sem er skipaður af stjórn fyrra starfsárs formanns, gegnir störfum hans í forföllum.  Hann skal hafa eftirlit með störfum hinna ýmsu nefnda félagsins og vera tengiliður þeirra við stjórn.

 

Fundarritari skal færa bók um það sem gerist á fundum félagsins og stjórnar þess og lesa upp fundargerðir í upphafi næsta fundar og undirrita hana ásamt formanni. 

 

Ritari annast bréf félagsins í samráði við formann.

 

Gjaldkeri hefur  yfirumsjón með fjármunum félagsins í samráði við stjórn. 

 

Meðstjórnendur starfa að öllum tilfallandi málum er þurfa þykir með öðrum stjórnarmönnum og taka sæti þeirra í forföllum eftir ákvörðun stjórnar.  Varamenn í stjórn skulu taka sæti aðalmanna í forföllum þeirra eftir ákvörðun stjórnar.  Stofueigandi í aðalstjórn er fulltrúi félagsins í Samtökum iðnaðarins.

 

9. gr.

 

Reikningstímabil, árgjald og sjóðir

Reikningsár skal vera venjulegt almanaksár.  Árgjald skal vera það gjald sem samþykkt er á aðalfundi hverju sinni.  Skólar skulu greiða sexfalt gjald félagsmanns.

 

Félagsmaður, sem fer úr félaginu, hvort heldur vegna úrsagnar eða af öðrum ástæðum, á ekki endurkröfurétt til greiðslu þegar greiddra félagsgjalda.  Sé félaga vikið úr félaginu sökum vanskila á félagsgjöldum skal hann greiða skuld sína óski hann eftir því að gerast félagi að nýju. 

 

Sjóðir félagsins eru félagssjóður og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna að verða.  Félagssjóður er rekstrarfé fyrir félagsstarfsemina og greiðir allan kostnað af henni.  Tekjur félagsins renna allar í hann en tekjuafgangi hvers árs skal ráðstafa á aðalfundi.  Við ákvörðun árgjalda skal þess gætt, s.s. auðið er, að starfsemi félagsins þurfi ekki að truflast vegna fjárskorts.  Nýjum sjóðum, sem stofnaðir kunna að verða, skal setja skipulagsskrá er samþykkt skal á aðalfundi.

 

10. gr.

Úrsögn eða brottrekstur

Hver félagsmaður getur sagt sig úr félaginu enda sendi hann skriflega úrsögn og tilgreina þar ástæður úrsagnar sinnar og skal viðkomandi vera skuldlaus.

Komi einhver félagsmaður fram á þann hátt, að ekki samræmist markmiði félagsins, hag þess og heiðri, getur stjórnin veitt honum áminningu, sekt eða vikið honum úr félaginu.  Hefur hann ekki atkvæðisrétt um þá tillögu enda hafi honum áður verið gefinn kostur á að verja mál sitt.  Brottrekstrartillögu skal geta í fundarboði  Félaga verður ekki vikið úr félaginu nema á félagsfundi.  Þarf til þess 2/3 greiddra atkvæða.

 

11. gr.

Heiðursfélagar

Heiðursfélaga getur félagið valið sér ef ástæður þykja til.  Heiður þessi er sá æðsti sem félagið veitir.  Þeir eru ekki gjaldskyldir og þurfa ekki að taka neitt starf í félaginu nema þeir vilji sjálfir en hafa öll réttindi sem aðrir félagsmenn.

 

12. gr.

Auglýsingar

Félagar hafa rétt til þess að geta þess í auglýsingum að þeir séu í Félagi íslenskra snyrtifræðinga.  Hins vegar er stjórnendum félagsins óheimilt að geta þess í auglýsingaskyni að þeir séu í stjórn félagsins.  Félagsmönnum ber að virða í hvívetna ákvæði samkeppnislaga nr. 8/1993.  Ef markaðsátak er gert á vegum félagsins, skulu eftirfarandi atriði gilda fyrir snyrtistofur sem geta verið þáttakendur:

a)       Starfandi snyrtifræðingar skulu vera félagsmenn.

b)       Snyrtistofur  greiði tilskilið gjald til Samtaka Iðnaðarins.

 

 

 

 

 

13. gr.

Félagsmerki

Merki félagsins, gyllt næla með skammstöfun félagsins, seljist öllum félögum.  Það er eign félagisins en tiltekin fjárhæð greiðist í eitt skipti fyrir heimild til notkunar þess.

 

Reglur um félagsmerki:

1)            Félagið sjálft og allir félagsmenn mega einir nota merki félagsins í rekstri sínum.

2)            Félagsmerkið skal notað á eftirfarandi hátt:

a)            Sem auðkenni á snyrtistofum og verslunum félagsmanna.

b)            Sem auðkenni á umbúðir þær sem félagsmenn nota í fyrirtækjum sínum.

c)            Sem auðkenni á bréfsefni, gjafakort og annars konar eyðublöð.

d)            Sem auðkenni í auglýsingum félagsmanna í blöðum og sjónvarpi.

3)            Við  úrsögn eða brottvikningu ber að endursenda merkið til stjórnar félagsins.

4)            CIDESCO merkið má nota á sama hátt og getið er um í lið 2.

 

14. gr.

Nám og kjaramál

Varðandi nám í snyrtifræði er vísað til reglugerðar um iðnfræðslu menntamálaráðuneytisins.  Félagið stendur ekki að  kjarasamningi en gerður skal ráðningarsamningur/vinnustaðasamningur milli launþega og atvinnurekanda.  Iðnnemasambandið fer með samningamál varðandi launamál nema.

 

15. gr.

Iðnfræðsla og nemaleyfi

Eftir að félagi hefur öðlast meistararéttindi er honum heimilt að taka að sér nema sem lokið hafa viðurkenndu námi samkvæmt námsskrá í snyrtifræði.  Samkvæmt iðnfræðslulögum má meistari í 100% starfi hafa einn nema og einn nema á hvern svein í 100% starfi hjá meistara að fengnu nemaleyfi frá menntamálaráðuneyti.

 

16. gr.

Félagsslit

Leysist félagið upp skal fjalla um tillögur þar um á sama hátt og um lagabreytingar sé að ræða.  Fundur sá, sem samþykkir á lögmætan hátt að slíta félaginu, kveður einnig á um hvernig ráðstafa skuli eignum þess og greiðslu skulda.

 

17. gr.

Lagabreytingar

Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi.  Tillögur um breytingar, sem leggja á fyrir aðalfund, skulu birtar í fundarboði.  Til þess að lagabreytingar öðlist gildi þarf 2/3 greiddra atkvæða lögmæts aðalfundar.

 

 

Samþykkt 28. apríl 1994

Samþykkt 23. febrúar 1995

Samþykkt 2. mars 1996

Samþykkt 11. mars 1998

Samþykkt 2. mars 2000

Samþykkt 16. mars 2002

Samþykkt á aukaaðalfundi þann 29. maí 2006

 

Lög þessi taka þegar gildi og jafnframt falla eldri lög úr gildi



 

 
 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.