Félagsgjöld

Félagsgjöld

Árgjald í FÍSF er kr. 15.000 - Greiðist ársfjórðungslega kr. 3.750 í senn

Reglur um félagsgjöld til Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Félags íslenskra snyrtifræðinga (FÍSF) eru eftirfarandi:

Einyrkjar eru þeir sem eru með rekstur en enga starfsmenn í vinnu og með veltu undir 10 millj.  Þeir greiða félagsgjald til FÍSF kr. 15.000 og einyrkjagjald til SI kr. 15.000 samtals kr. 30.000 á ári.

Þeir sem eru með rekstur og starfsmenn í vinnu greiða 0,15% af veltu fyrirtækisins til SI, 0,19% af launagreiðslum (reitur 02 á launaframtali) til SA og kr.15.000.- til FÍSF.

Lágmarksgjald til SI er kr. 15.000.- og til SA kr. 8.000.- þannig að þeir sem eru á lágmarksgjaldi greiða samtals í félögin kr. 38.000.- á ári.

Við viljum benda á heimasíðu Samtaka iðnaðarins www.si.is en þar er að finna reiknivél þar sem hægt er að setja inn réttar veltu- og launatölur og sjá hver greiðslan er.

 

Inntökubeiðni FÍSF - pdf form



 

 
 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.