Stefnumótun og framtíðarsýn

Framtíðarsýn og stefnumótun í snyrtiiðn til ársins 2011

Framtíðarsýn og stefnumótun í snyrtiiðn til ársins 2011

Meginmarkmið - Árangur

F1 Heilsueyjan Ísland - Vellíðan, fegrun, afslöppun og útgeislun

Síðustu 5 árin hefur heilsueyjan Ísland verið þekktust fyrir þá fagkunnáttu sína á árangursríkum andlits og líkamsmeðferðum sem í boði eru á húð og snyrtistofum sem staðsettar eru víða um eyjuna. Ferðamenn koma í stríðum straumi  til þess að nýta sér þessa þjónustu. Stofurnar eru í góðu samstarfi við lýtalækna, húðlækna,  nuddara og aðra aðila í heilsugeiranum. Við erum  í  góðu  samstarfi við ferðaþjónustur og  flugfélög eyjunnar. Þessi mikla uppsveifla sem átt hefur sér stað  er  afrakstur stefnumótunarfundar sem haldin var fyrir 5 árum.  

Eyjaskeggjar og ferðamenn sækjast eftir þjónustu fyrirtækjanna, sem er rómuð fyrir árangursríka afslöppun og útgeislun. Hefur þetta leitt til þess að arðsemi  í iðninni er mikil, umsvif fyrirtækjanna hafa aukist, launin hækkað til muna og eftirsóknarvert er að vinna við þessa iðngrein þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi.

Nú hafa stofueigendur tekið sig saman og opnað íslenska heilsulind á Möltu þar sem einungis er notað íslenskt hráefni og íslenskt hugvit í verki og hönnun.  Umhverfisráðherra, mun opna formlega heilsulindina í næstu viku.

F2 Fagmennska í fyrirrúmi – fyrir alla

Félag íslenskra snyrtifræðinga ákvað árið 2006 að breyta nafni sínu í Félag húð- og snyrtifræðinga.  Markaðsstarfið sem hófst vorið 2006 hefur skilað okkur miklum árangri.  Byrjað var að fara í almennt kynningarstarf FÍSF og SI með bæklingum og auglýsingarherferð. 

Kynningarstarfið gerði það að verkum að hinn almenni borgari veit meira um fagið sem slíkt.  Því var ráðist í enn viðameiri herferð í samvinnu við Morgunblaðið þar sem vikulega voru birtar greinar um hvað húð- og snyrtifræðingar eru að gera á sínum stofum og hvernig á að meðhöndla húðina á mismunandi árstímum.  Allar greinar sem hafa birst hafa verið settar á heimasíðu félagsins sem hefur sömuleiðis verið mikið kynnt í fjölmiðlum.  Vitundavakning almennings var mikil og hefur húð- og snyrtistofum fjölgað gríðarlega.  Aukning karlmanna á stofurnar hefur líka verið mikil.

Í framhaldi af því var leitað samstarfs við ríkið og sveitarfélögin um námskeið fyrir efstu bekki grunskólanna og framhaldsskólanna.  Þetta forvarnarstarf hefur skilað sér í að ungdómurinn í dag hefur fengið hjálp á heilsusamlegri máta með aðstoð húð -og snyrtifræðinga.   

F3 Sérhæft vöru- og þjónustuframboð fyrir viðskiptavini

Vöru- og þjónustuframboð fyrirtækja í greininni hefur þróast og vaxið og er nú svo komið að viðskiptavinum standa til boða heildrænar lausnir á fjölmörgum sviðum. Síðustu fimm árin hafa fagaðilar í tengdum greinum verið að fara í samstarf.  Myndast hafa stærri kjarnar sem bjóða fjölbreytta þjónustu fyrir alla fjölskylduna.  Í þessum kjörnum starfa m.a. húð- og snyrtifræðingar, fótaaðgerðarfræðingar, nuddfræðingar, hárgreiðslumeistarar, húðlæknar, græðarar og heilsu- og næringarfræðingar.  Sala snyrtivara á stofunum hefur aukist og viðskiptavinir eru orðnir meira meðvitaðir um kosti þess að versla og fá ráðgjöf hjá fagaðila.  Eingöngu er verið að vinna með og selja viðurkenndar fagvörur í hverri grein fyrir sig.

Afgerandi árangursþættir – Forsendur 

A1 Heildstætt nám á heimsmælikvarða - ekkert púður og pjatt

Nám í snyrtifræði er orðið mjög eftirsóknarvert og með því besta sem gerist í heiminum. Það hefur náðst með auknu samstarfi innlendra og erlendra skóla og kennaraskipti eru orðin alltíð. Skólarnir gera orðið meiri kröfur við val á nemendum og enginn nemi er tekinn inn nema að hafa lokið tilskildu undirbúningsnámi.

Ítarleg könnun og uppbygging þekkingar í snyrtifræði hefur m.a. leitt til þess að skólarnir eru að standa sig mun betur, meira aðhald er orðið í kennslu og lögð er meiri áhersla á skipulagningu, vinnuröðun og hraða sem kemur sér vel í starfi.

Meiri samvinna er orðin á milli skóla og stofa, m.a. um lágmarksfjölda æfinga á hverri meðferð og eftirliti með því svo dæmi séu tekin. Stofur sem uppfylla tilskilin skilyrði hljóta viðurkenningu og vottun þar að lútandi.

Á undanförnum árum hefur aðsókn snyrtifræðinga í endurmenntun stóraukist og námsframboðið stóreflst. Meðal annars er í boði vandað framhaldsnám í samstarfi við húðlækna og meira er um skipulagðar hópferðir á erlendar og innlendar ráðstefnur og sýningar.

Til að bregðast við miklu brottfalli snyrtifræðinga úr greininni hefur Félag húð- og snyrtifræðinga, í samvinnu við SI, skóla og snyrtistofur á markaðnum, unnið markvisst að öflugu markaðs- og kynningarstarfi til að gera starfið jákvæðara og eftirsóknarverðara. Snyrtistofur, fagfélagið og skólarnir hafa líka brugðist vel við þróun um frjálsan vinnumarkað og inngöngu Íslands í ESB fyrir ári síðan, og hafa eflt til muna endurmenntun fyrir erlenda snyrtifræðinga – og annað starfsfólk sem ráða sig til starfa á íslenskar snyrtistofur.

Með aukinni fræðslu hefur skólunum tekist að laða til sín karlmenn í snyrtifræði og á síðasta ári útskrifaði Snyrtiakademían 6 nema og Fjölbraut í Breiðholti 7 nema.

A2 Gjöfult samstarf inn- og útá við

Samstarf innan greinarinnar hefur verið mjög gott síðustu árin.  Þátttaka félagsmanna á fundi félagsins hefur stóraukist og félagið hefur staðið fyrir auknum kynningum á nýjungum í hinum alþjóðlega húð- og snyrtiheimi, m.a. með erlendum fyrirlesurum.  Þá hafa heildsalar mætt á fundi félagsins og kynnt sínar vörur og meðferðir.  Félagið er með öfluga heimasíðu. Þar er að finna allar nýjustu upplýsingar í húð- og snyrtigeiranum, auk þess sem allar fundargerðir félagsins eru settar inn á heimasíðuna. Fundargerðir félagsins eru sendar öllum félagsmönnum í tölvupóst strax eftir fundina. Húð- og snyrtifræðingar sækja í auknum mæli viðbótarmenntun erlendis og hefur stjórn félagsins hvatt þessa félagsmenn til að miðla þekkingu sinni til annarra félagsmanna í greinarskrifum sem eru settar inn á heimasíðuna eða í formi fyrirlestra á fundum félagsins.  Hvaða gagn gera húð- og snyrtifræðingar?

Samstarf milli mismunandi starfsgreina.

  1. Aukin samvinna hefur orðið milli húð- og snyrtifræðinga og annarra greina.  Má þar fyrst nefna samstarf við heilsuræktarstöðvarnar.  Aukin heilsuvakning hefur átt sér stað í þjóðfélaginu og hefur fólk í auknum mæli breytt hugarfari sínu til útlits og kýs að fá fjölbreyttari þjónustu innan heilsuræktarstöðvanna.  Viðskiptavinir snyrtistofanna hafa verið duglegir að nýta sér þjónustu heilsuræktarstöðvanna og þá einnig barnagæslu og heilsubarinn i leiðinni. 
  2. Snyrtistofur og hárgreiðslustofur hafa náð góðu samstarfi með að ná viðskiptavinum í heildrænar meðferðir bæði fyrir andlit og hár.
  3. Snyrtistofur og heilsulindir í samstarfi við nuddara, heilara, nálastungur, hómópata, jógakennara og fleiri, hafa slegið algjörlega í gegn. Heilsulindirnar njóta vaxandi vinsælda og er greinilega mikil þörf á þeim fyrir nútíma manneskjuna í amstri dagsins. 

A3  Fagleg og lögleg starfsemi í traustu umhverfi

Starfsemi fyrirtækja í greininni byggir á traustum grunni í lögum og reglugerðum.  Greinin nýtur virðingar sem samstarfsaðili innan heilbrigðisstéttarinnar.  Sýnilegar eru á flestum stofum siðareglur FÍSF sem húð- og snyrtifræðingar hafa að leiðarljósi við störf sín.  FÍSF hefur gert samning við tryggingarfélögin um að tryggja stofur sérstaklega fyrir óhöppum.  Mikið hefur dregið úr ólöglegri starfsemi sökum þess að félagsmenn hafa verið duglegir að láta vita af slíku athæfi.  Miklar framfarir hafa orðið á vinnutíma húð- og snyrtistofa.  Algengt er að stofur eru með mun sveigjanlegri og fjölskylduvænni vinnutíma sem skilar sér m.a. í því að auðveldara er að fá fagfólk í vinnu. 

A4  Skilvirkt markaðs- og kynningarstarf - nýr lífsstíll

Í tengslum við nafnbreytingu fagfélagsins húð- og snyrtifræðinga varð einnig breyting á merki félagsins í nútímalegra form. Í tengslum við þessar breytingar erum við með nýtt markaðsátak sem þróað er af félagi okkar ásamt SI. Helstu markmiðin eru: verndun fagsins, skilvirkt og skipulagt markaðs og kynningastarf sem felst í :

  • Húð og snyrting  hluti  af lífstíl
  • Menntamálin: kynlaust nám,( fá kk inn í námið) samræma kennsluna  og kennsluaðferðir. í samráði við kennara, stofueigendur- meistara
  • Skoðanakönnun Gallup....( SI) útávið og innávið í greininni, markaðsrannsókn
  • Kynna markvisst greinina innan eldri deilda grunskóla.
  • Árstíðabundið markaðsátak, t.d., sólvarnir á sumrin, kraftmiklar meðferðir á veturna o.s.frv.
  • Verða sýnilegri með þátttöku í sýningum og keppnum.
  • Markaðsetja okkur sérstaklega fyrir karlmenn sem markhóp, þá sem hluti af lífstíl. Með hjálp SI að leita inn á starfsgreinar þar sem kk eru í meirihluta, í formi kynninga og fræðslu.  
  • Leita eftir samstarfi við stærri fyrirtækin sbr. Bankastofnanir með ráðgjöf og kynningu á okkar þjónustu,
  • Fagleg og lögleg, virðum handverk okkar og þjónustu og verðleggjum okkur eftir því.
  • Endurmenntun:  allavega 1x á ári fyrir alla snyrtifræðinga varðandi fagið  
  • MEISTARINN (óskarinn), óskum eftir hugmyndum á framkvæmd þessara verðugu verðlauna.

A5. Markviss þróun til móts við þarfir nútímafólks

Nú hafa allar stofur innan FÍSF notað hugbúnað sem heldur utan um sögu viðskiptavinarins og hefur það m.a. leitt til þess að sala og þjónusta stofanna er mun skilvirkari og arðsemin hefur aukist. Að auki hafa stofurnar innleitt kerfi sem gerir viðskiptavinum kleift að bóka og borga tíma fyrirfram á Netinu og er annað bókunarform á stöðugu undanhaldi.

Í takt við hraða þjóðfélagsins hafa stofurnar þróað styttri meðferðir - fyrir kynlaust nútímafólk - þannig að viðskiptavinir geti nýtt sér fleiri en eina meðferð á sama tíma. 

Það hefur sýnt sig að stefnumótunarvinnan fyrir 5 árum markaði tímamót í húð- og snyrtiiðn sem hefur frá þeim tíma skilað sér virkilega til félagsmanna. Allt frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að miðlun upplýsinga um nýjungar og þróun í faginu til að koma til móts við auknar þarfir jafnt snyrtifræðinga sem og viðskiptavina.

 

Framtíðarsýn og stefnumótun í snyrtiiðn (PDF snið)

 



 

 
 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.