Fréttir og greinar

Síðasta skemmti- og fræðslukvöld FÍSF á árinu vel heppnað

Kvöldið byrjaði á Airbrush kynningu frá Bergþóru Þórsdóttur í Supernova Hair and Airbrush Studio sem var einstaklega áhugaverð. Sýndi hún félagskonum förðun með Airbrush tækni og skyggði m.a. upphandleggi, bringu og fætur. Ekki var svo hægt annað en að dást að útkomunni. Bergþóra svaraði einnig fjölmörgum spurningum félagskvenna sem létu ekki á sér standa á þeim nótunum, bæði á meðan á sýningu stóð og svo á eftir.

Því næst voru einstaklega flottar veitingar bornar fram sem hentuðu ákaflega vel með vínkynningunni sem á eftir fór frá heildversluninni Vínó, en eigendur Vínó töluðu um hvaða vín pössuðu með ákveðnum mat og búa þau hjónin yfir gríðarlegri reynslu á þessu sviði, fengu félagskonur einnig að bragða á tegundunum sem þau kynntu og var þetta í alla staði vel heppnað kvöld.

   

fisf-20071121-3 fisf-20071121-4
fisf-20071121-5
fisf-20071121-1 fisf-20071121-2

 

 

 
 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.