Fréttir og greinar

Airbrush kynning

Fræðslu- og skemmtikvöld FÍSF

Þá er komið að síðasta atburði þessa árs sem er fræðslu- og skemmtikvöld sem verður þann 14. nóvember nk. og hefst kl. 20:00 á Hótel Loftleiðum.

Um er að ræða mjög áhugaverða Airbrush kynningu hjá Bergþóru Þórsdóttur í Supernova Hair and Airbrush Studio. Sýnir hún förðun með Airbrush tækni og skyggir m.a. upphandleggi, bringu og fætur.

Bergþóra er hárgreiðslumeistari og lærði förðun hjá Línu Rut og fór eftir það til Bandaríkjanna til að læra Airbrush tæknina og gervahönnun. Hún lærði hjá Dinu Osley sem er frumkvöðull Airbrush tækninnar og eigandi Dinair frá árinu 1981. Bergþóra er með kennararéttindi frá Dinair Airbrush Makeup Institution og rekur skóla á Íslandi. Bergþóra vann hjá Universal Studios kvikmyndaverinu í LA og vann m.a. við Las Vegas þættina sem sýndir eru á Stöð 2 um þessar mundir. Einnig hefur hún unnið hjá Borgarleikhúsinu bæði í leikgervadeild og við hár og förðun. Í dag rekur hún ásamt eiginmanni sínum Hair and Airbrush Studio í Smáralindinni.

Airbrush Airbrush

Við munum enda kvöldið með vínkynningu þar sem smakkað verður á góðum jólavínum. 

Skálum að lokum fyrir góðum félagsskap og frábæru ári og gæðum okkur á snittum.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 14. nóvember til Samtaka iðnaðarins í síma 591 0100.

 

Hlökkum til að sjá sem flestar, 

Stjórn Félags íslenskra snyrtifræðinga



 

 
 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.